16.3.2008 | 20:57
Komdu með húkkinn gamli svingur!
Auður...hvar er draumurinn? Því þetta er okkar nótt, ég vil þig bara þig því ég er undir þínum áhrifum í nótt , þú fullkomnar mig þótt þú sér of góð og ekkert breytir því, hey kanína ég er alveg hamstola hér á nýjum stað eltu mig uppi því ég þekki þig og þína langömmu!
Æðislega gaman á tónleikunum - var alveg syngjandi sveitt dansandi í æðislegri stemmingu með hinum nokkur þúsundunum sem fóru á Sálartónleikana á föstud.kvöldið
Vil þakka manninum sem stóð graaaafkyrr alla tónleikana fyrir framan mig, konunni sem var dugleg að sveifla hárinu framan í mig, manninum sem prumpaði og bjó til meira pláss á gólfinu, manninum í hvíta bolnum við hliðina á mér sem ruggaði sér með mér í takt við rólegu og rómantísku lög Sálarinnar, ég veit við áttum moment Og að sjálfsögðu síðan Kötu og Gylfa sem eru ástæðurnar að ég fór á tónleikana yfir höfuð
Var svo að vinna á laugardeginum, fór svo með Erlu og Birgi í afmæli og smá djamm síðan eftir það...er búin að vera hálfframlág í dag ehhh Dröslaðist þó í sund í góða veðrinu....mmmm..finn lykt af vori
Athugasemdir
Gleðilegt komandi sumar...
Erna Lilliendahl, 16.3.2008 kl. 22:03
takk fyrir síðast dúllan mín....
Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl, 17.3.2008 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.