30.10.2008 | 12:59
hmmm..
Ég er nú ekki vön að tjá mig um pólitík en ég bara verð að játa mig sigraða... ég botna ekki upp né niður í þessum orðahafi. "Vergri" = getur einhver útskýrt fyrir mér hvað þetta allt þýðir.... um hvað fjallar þessi grein á íslensku?
Ég ætla ekki að þykjast skilja allt þetta orðaflaum sem er búið að vera í gangi, sumt skil ég vel , sumt bara alls ekki - það mætti vera svona túlkur við hliðina á táknmálstúlknum sem þýðir hvað þetta fólk er að segja á mannamál...eða á "almennu" mætti kannski kalla það.
Er einhver í sömu sporum og ég eða er ég með einhvers konar pólitíska-orðblindu?
85% af vergri landsframleiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Auður mín...vertu ekki svona vitlaus...þetta skilja allir!...
Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl, 30.10.2008 kl. 21:46
Vergjörn ?
Erna Lilliendahl, 30.10.2008 kl. 23:18
Jih , ég hélt að ég væri ein um að vera svona vitlaust og ekki skilja þetta , gott að vita sem eru líka dúm
Get ekki með nokkru móti skilið þetta orð og hana nú
Hildur Þöll (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 13:50
Verg er þýðing á danska orðinu brutto og merkir öll framleiðsla þjóðarinnar yfir ákveðið tímabil. Annaðhvort það eða þá er þetta annað orð yfir naflaló!
Bjössi (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 13:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.