Snillingur...

Langaði bara að óska ykkur gleðilegra páska og vona að þið hafið það öll rosa rosa gott  Grin

Er búin að vera að skúra hérna heima og taka til með tónlistardvd í tækinu með Phil Collins...ef þetta kemur ykkur ekki í páskaskapið þá veit ég ekki hvað - þetta er með betri trommuslætti sem ég hef séð og heyrt!  Stillið volumið hátt  Cool

http://www.youtube.com/watch?v=XUR4k0LyTdc

Kveðja

Páskakanínan!


Kastljós

Smá meira um Akureyri og skíðanámskeiðið - ég og Gunnar sjáumst þarna í smá flugumynd ;)

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4365634/1


Komdu með húkkinn gamli svingur!

Auður...hvar er draumurinn? Því þetta er okkar nótt, ég vil þig bara þig því ég er undir þínum áhrifum í nótt , þú fullkomnar mig þótt þú sér of góð og ekkert breytir því, hey kanína ég er alveg hamstola hér á nýjum stað eltu mig uppi því ég þekki þig og þína langömmu!

 Æðislega gaman á tónleikunum - var alveg syngjandi sveitt dansandi í æðislegri stemmingu með hinum nokkur þúsundunum sem fóru á Sálartónleikana á föstud.kvöldið Grin

Vil þakka manninum sem stóð graaaafkyrr alla tónleikana fyrir framan mig, konunni sem var dugleg að sveifla hárinu framan í mig, manninum sem prumpaði og bjó til meira pláss á gólfinu, manninum í hvíta bolnum við hliðina á mér sem ruggaði sér með mér í takt við rólegu og rómantísku lög Sálarinnar, ég veit við áttum moment Wink  Og að sjálfsögðu síðan Kötu og Gylfa sem eru ástæðurnar að ég fór á tónleikana yfir höfuð Cool

Var svo að vinna á laugardeginum, fór svo með Erlu og Birgi í afmæli og smá djamm síðan eftir það...er búin að vera hálfframlág í dag ehhh Whistling Dröslaðist þó í sund í góða veðrinu....mmmm..finn lykt af vori InLove

 


Stjörnumerkin eftir kynlífið!

Stjörnumerkin eftir að kynlífi lýkur  !!!   hehe Cool

Hrútur: Ok, gerum það aftur !

Naut: Ég er svöng - pöntum  pizzu

Tvíburi:  Veistu hvar fjarstýringin er ?

Krabbi: Hvenær giftum við okkur ??

Ljón: Var ég ekki frábær  ??

Meyja: Ég verð  að þvo rúmfötin núna

Vog: Mér fannst þetta gott ef  þér fannst það líka

Sporðdreki: Hef fengið það betra sko

Bogamaður:  Ekki hringja í mig - ég hringi í þig.

Vatnsberi: Gerum það núna í engum fötum  !

Fiskur: Hvað  sagðist þú annars heita  ?

Steingeit: Áttu nafnspjald ?


My Loony Bun is fine Benny Lava!!

HAHAHAHAHAHA

http://www.youtube.com/watch?v=ZA1NoOOoaNw


Ekki fyrir aumingja! :D

Fékk þá snilldarhugmynd að leggja af stað á fimmtudagskvöldið. Við vorum náttúrulega heila öld að koma okkur af stað...Færðin var góð framan af en svo fór nú að renna á mig 2 grímur...Heiðin var hræðileg og eftir að við fórum fram hjá Staðarskála fór mér ekkert að lítast á þetta....Ég ákvað að beygja inn hjá Reykjaskóla í Hrútafirði þar sem ég vissi að þar var líka farfuglaheimili þar sem ég hafði verið svo forsjál að taka með mér eintak af “Áningu 2008” þegar ég skrapp á klósettið í Borgarnesi. En ég fór of langt og festi mig í skafli beint fyrir framan skólann. Ég sá ljós í húsi aðeins ofar og skokkaði yfir skaflana eftir að hafa séð að það var nú ekki fræðilegur að losa bílinn sjálf. Fólkið þar var yndislegt og hjálpaði okkur að losa bílinn og hleypti okkur inn í Farfuglaheimilið Sæberg þar sem umsjónarfrúin var ekki viðlátin sjálf. Þau bjuggu um okkur og voru ekkert nema almennilegheitin. Krakkarnir voru svona hálfundrandi á þessu öllu saman en morguninn eftir þegar við vöknuðum var rjómablíða, tindrandi snjór og yndislegur morgun. Allir höfðu sofið vel eftir ævintýrið kvöldinu áður. Ég skildi eftir 6 lítil Siríus páskaegg við hurðina hjá bjargvættunum áður en við fórum þar sem þau voru ekki við til að ég gæti þakkað þeim áður en við fórum. Leiðin lá til Akureyrar...það var töluverð hálka og ég komst að því að bíllin minn var á ónýtum nagladekkjum. 

Loksins komumst við til Akureyrar og fórum á hótelið, fengum mjög gott herbergi, stórt með aðgengi fyrir hjólastóla, fórum svo og ryksuguðum bílinn, fengum okkur að borða á Bautanum, rúntuðum og slökuðum svo á upp á herbergi. Fórum svo á fund kl. 8 þar sem námskeiðið og samstarfsaðilar voru kynntir, sýndar myndir og reynslusögur foreldra- greinilega mikið búið að gerast síðan á síðasta námskeiði en enn meiri kynning og enn betra umtal myndi örugglega svo sannarlega vekja áhuga og athygli fleiri en einhvers staðar verður þetta að byrjaJ T.d. er búið að stofna félag sem heita Klakarnir og er markmiðið að styðja fólk að stunda svona vetraríþróttir og fleira : www.klakarnir.is . Og þar kom einnig fram að skíðaíþróttin er sko ekki fyrir aumingja – og fólk með fötlun eru sko engir aumingjar! ;) Allir uppgefnir og sofnaðir um 10 leytið J Við vöknuðum hress og fórum í morgunmat. Ég fór svo á dekkjaverkstæði og setti mig á hausinn með 2 glænýjum framdekkjum sem var ekki vanþörf á enda strax munur á bílnum. Drifum okkur svo upp í fjall og ég og Júlía byrjuðum á að skíða aðeins saman og svo byrjaði Gunnar í kennslunni. Hann fékk fínan kennara hana Beth frá Winter Park Colorado (http://nscd.org/ )  til að byrja með en svo tóku Friðrik og Tómas við og eru þeir báðir þrælvanur, Friðrik á tvítuga stelpu sem er núna ákkúrat að keppa á “einskíði” í Bandaríkjunum ;) Upprennandi ólympíufari myndi ég segja ;)

Annar strákur á námskeiðinu Breki (12 ára)  er einnig upprennandi skíðamaður á “einskíði” og var hreint frábært að fylgjast með honum.

Skíðað allan daginn í frábæru veðri og frábæru færi. Fórum svo heim og hressstum okkur aðeins við áður en við fórum í mat til Stínu vinkonu ...mmm...fengum æðislegan mat og gaman að hitta þau öll – takk fyrir matarboðið elsku Stína og Davíð J

Vorum mjög lúin þegar við fórum að sofa um 10. Sunnudagur....fórum á fætur hress og kát eftir örugglega 11 tíma svefn og fengum okkur morgunmat, tókum svo dótið saman og fórum upp í fjall. Aftur æðislegt veður og gott færi, smá þoka sem kom nú samt ekkert að sök. Aftur byrjuðum ég og Júlía aðeins , ég notaði tækifærið og fór nokkrar ferðir alveg upp, rosa gaman hehe. Svo tók kennslan við og Friðrik og Tómas voru mættir og ég tók núna virkari þátt í að læra að styðja við Gunnar, það var rosa gaman og ég fékk sko að heyra það frá Gunnari þegar hann var ósáttur við móður sína...Eftir nokkrar byltur, brun og svig lauk þessu svo um kl. 3. Þá hittust allir og við kvöddum alla. Frábært framtak hjá öllum sem stóðu að þessu, vel skipulagt og æðislega gaman! Ég allavega hvet ALLA sem eiga börn með einhvers konar fötlun að prufa þetta, sjáið ekki eftir því – við vorum öll sammála á fundinum að það sem helst oft stæði í vegi fyrir að prufa svona væru í raun foreldrarnir þar sem þeir ættu erfitt með að sjá möguleikana í þessu, en þeir eru endalausir og bara lausnir engar hindranir...og mestu máli skiptir ...að hafa gaman að þessu!! Þessi búnaður er til á helstu skíðastöðum landsins og við eigum fullt af fólki á öllum vígstöðvum sem er búið að þjálfa til að hjálpa við að nota hann!  Takk Anna Karólína, Friðrik, Tómas, Jón, Beth Fox, Sverrir, Guðný, Lilja og allir sem stóðu að þessu, fyrir stuðninginn og frábæra helgi!!

Héldum heim á leið eftir að hafa skíðað og sem betur fer gekk heimferðin betur J Krakkarnir alsælir með ferðina og ævintýrið J Og ég að borga fyrir þetta í dag með strengjum dauðans ....úff... hehe

Læt fylgja með Powerpoint sýningu með myndum úr ferðinni...aðallega úr fjallinu...munið að stilla hljóðið hátt!! Grin  (skráin er merkt : Myndbönd: Akureyri2008-smá þolinmæði meðan það loadast)

 http://www.123.is/audurs/default.aspx?page=video


Skíðaferð til Akureyrar

 ak4Jæja styttist í skíðaferðina okkar krakkana. Síðast þegar við fórum 2005 á skíðanámskeið til Akureyrar á vegum Íþróttasambands fatlaðra, Vetraríþróttasambands Íslands og Winter Park Colorado skemmtum við Gunnar okkur frábærlega. Núna ætla ég að taka Júlíu líka með  og hún er svaka spennt enda fórum við um daginn í Bláfjöll og ég kenndi henni á skíði...að sjálfsögðu var stelpan með náttúrulega hæfileika...hehe

Ætlum að bruna norður á föstudaginn - gista á Kea 2 nætur og fara í mat til Stínu og skíða svo heilmikið :) Hlakka alveg rosalega til enda líka gott að skipta um umhverfi og gera eitthvað skemmtilegt :)

Nokkrar myndir síðan 2005.

ak1ak3ak2

 


Eiríkur Fjalar, Dauðinn, Foxy og Batgirl....að ógleymdum Satan...

Okkar árlega búningapartý hjá okkur í Ljóskuklúbbnum var haldið á laugardaginn heima hjá mér reyndar þetta árið. Við vorum reyndar 2 ljóskum fátækari. Þetta heppnaðist rosalega vel og við skemmtum okkur konunglega LoL

Vil bara þakka öllum furðuverunum sem mættu fyrir frábæra skemmtun og æðislegt kvöld. Setti inn nokkrar mynd inn í marsalbúmið sem Erla reyndar á - en set inn fleiri síðar.

Einnig hélt ég upp á afmæli Unnars en hann varð 3ja ára núna á laugardaginn líka - partýhelgi með meiru :) Afmælið gekk rosalega vel og hann var alsæll með allar gjafirnar og fullt af gestum mættu og fengu sér kaffi og með því - þetta var eiginlega farið að líta út eins og fermingarveisla og það var bara frábært!  Vil þakka öllum fyrir litla strákinn minn Heart

Set inn myndir úr afmælinu líka seinna :)

 


Hææææ!!

Mætt!

Vegna fjölda áskoranna...ætla ég að taka upp bloggið mitt aftur :)


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband